BreytingasagaBreytingasaga í Azure
Breytingasagan færist reglulega úr Dataverse yfir í Azure. Henni er ekki eytt úr Dataverse fyrr en búið er að vista hana örugglega og þið hafið samþykkt eyðinguna. Notendur skoða söguna áfram á færslunni í Dynamics 365, með sömu heimildum og í kerfinu.
AfritAfrit af töflum
Valdar töflur eru afritaðar reglulega, og ekkert er tekið úr Dynamics 365. Hver breyting er vistuð sem sérstök útgáfa. Þannig sést hvernig færsla leit út á tilteknum degi, og síðasta ástand eyddrar færslu er geymt.
VarakerfiLestur í neyð
Afrit af lykiltöflum er líka geymt utan skýja Microsoft, til dæmis í ykkar eigin gagnaveri. Lokað lesviðmót gerir afmörkuðum hópi kleift að leita, fletta og flytja út í Excel á meðan Dynamics 365 er niðri.
GreiningSkýrslur aftur í tímann
Sagan nýtist líka í skýrslur, til dæmis til að sjá hvernig verkefnalistinn leit út 1. júlí eða hvað breyttist milli ársfjórðunga. Gögnin eru aðgengileg í Power BI og SQL-verkfærum, án viðkvæmra dálka.