Hafa samband
MCP (Model Context Protocol)

Gervigreind sem nær í gögnin – en ekki lengra en hún má.

MCP er opinn staðall sem gerir gervigreindarbiðlurum á borð við Copilot Studio, GitHub Copilot og Claude kleift að nota gögn og aðgerðir úr öðrum kerfum. Microsoft býður MCP-þjóna fyrir Dataverse og Dynamics 365. Þegar þeir duga ekki smíðum við sérsniðna MCP-þjóna utan um ykkar ferli.

Hvað er MCP-þjónn – og hvað ekki

Er

Þjónusta sem lýsir verkfærum fyrir gervigreind – leita, lesa, stofna, uppfæra eða keyra aðgerð – og framkvæmir þau þegar agent kallar á þau. Einn þjónn nýtist mörgum biðlurum, svo ekki þarf að smíða sömu tenginguna aftur fyrir hvern og einn.

Er ekki

Leið framhjá aðgangsstýringu. Þjónninn á að virða heimildir notandans eða agentsins sem kallar á hann og hver tenging er opnuð meðvitað fyrir tiltekna biðlara. Opinn aðgangur að öllum töflum er sjaldnast rétta svarið.

Innbyggt í Dynamics 365

Byrjum á þjónunum frá Microsoft

Microsoft rekur MCP-þjóna fyrir Dataverse og Dynamics 365. Þeir virða öryggishlutverk kerfisins og stjórnandi ákveður hvaða biðlarar mega tengjast. Verkfæri, forútgáfur og verð breytast ört, svo við staðfestum stöðuna fyrir ykkar umhverfi og leyfi áður en ákvörðun er tekin.

CRM og Dataverse

Dataverse MCP-þjónn

Fyrir Dynamics 365 Sales, Customer Service og önnur forrit á Dataverse. Agent getur leitað í gögnum, flett upp töflum, keyrt fyrirspurnir og stofnað eða uppfært færslur innan öryggishlutverka og línuöryggis notandans. Eyðing krefst skýrs samþykkis. Leyfðir biðlarar eru stilltir í Power Platform admin center.

ERP

Dynamics 365 ERP MCP-þjónn

Fyrir Finance og Supply Chain Management. Agent vinnur með gagnaeiningar, form og aðgerðir eins og notandi með sama öryggishlutverk, og ykkar viðbætur og sérstillingar fylgja sjálfkrafa með. Lýsigögn og leiðbeiningar þjónsins eru á ensku, svo íslensk samtöl eru prófuð sérstaklega.

Kostnaður: Notkun er gjaldfærð í Copilot-einingum eftir því hvaða biðlari kallar á þjóninn og hvaða leyfi notendur hafa; tiltekin Dynamics 365 Premium-leyfi og Microsoft 365 Copilot-leyfi geta fellt gjaldið niður. Við tökum þetta saman í kostnaðaráætlun áður en tenging er opnuð.
Sérsmíði Retric

Sérsniðnir MCP-þjónar utan um ykkar ferli.

Innbyggðu þjónarnir sjá töflur og færslur en þekkja ekki alltaf reglurnar ykkar. Sérsniðinn þjónn býður agentinum fá og vel skilgreind verkfæri, til dæmis „skrá kvörtun á viðskiptavin“ í stað almenns aðgangs að öllum töflum. Við smíðum hann í .NET, hýsum hann í ykkar Azure-umhverfi og tengjum hann við Copilot Studio eða aðra MCP-biðlara.

Viðskiptaaðgerðir sem verkfæriAfmörkuð verkfæri með ykkar reglum, sannprófun og staðfestingum
Kerfi utan Dynamics 365Bókhald, greiðslulausnir, Þjóðskrá eða eigin API, aðgengileg agentum á sama hátt
Ein tenging, margir biðlararSami þjónn nýtist í Copilot Studio, Microsoft Foundry, GitHub Copilot og öðrum MCP-biðlurum
Auðkenning með Entra IDAgentinn sér aðeins það sem notandinn eða þjónustuauðkennið má sjá
Íslenskt samhengiLýsingar verkfæra og svör sem virka á íslensku, prófuð með raunverulegum spurningum
Rekstur og útgáfurSkráning kalla og villna, notkunarmörk og útgáfustýring eins og í öðrum hugbúnaði
Tilboð

Ein tenging. Prófum hana á réttum gögnum.

Við tengjum einn agent við innbyggðan eða sérsmíðaðan MCP-þjón í prófunarumhverfi, með samþykktum árangursviðmiðum og heimildum. Tími og verð eru staðfest í tilboði. Niðurstaðan getur verið tenging í rekstri, einfaldari lausn eða að bíða að sinni.

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.