Hafa samband
Dynamics 365 · Dataverse · Copilot-fulltrúar

CRM sem vinnur með þér – ekki gegn þér.

Við hjálpum íslenskum fyrirtækjum að bæta þjónustu, einfalda ferla og ná betri yfirsýn. Við tengjum saman gögn og ferla með Dynamics 365 og Dataverse og nýtum gervigreind þar sem hún kemur að gagni. Stundum er einfaldasta lausnin að nýta betur það sem er þegar til staðar.

2019Retric stofnað
5Sérfræðingar
ReykjavíkHöfuðstöðvar
Hvað gerum við?

Fjórar leiðir til að byrja. Ein í einu.

Hvert verkefni byrjar á greiningu. Við metum hvaða lausn/ir henta áður en lengra er haldið. Tímarammar eru viðmið; umfang, verð og afhending eru send með tilboði.

Greining og ráðgjöf

Við kortleggjum ferla, gögn og kerfi og skilum skriflegri tillögu: hvað á heima í Dynamics 365, hvað í Dataverse og hvað á að vera í friði.

2–4 vikurFast verð

Innleiðing Dynamics 365

Sales, Customer Service eða Customer Insights – Journeys, sett upp með ykkar ferlum, gögnum og fólki. Engar skýjaborgir.

8–16 vikurÁfangaverð

Agentar og Copilot

Við metum eitt afmarkað verkefni, prófum tilbúna eða sérsniðna agenta og berum árangurinn saman við einfaldari sjálfvirkni. Heimildir, gæði svara og kostnaður eru hluti af matinu.

Áætlað 4–8 vikurTilboð eftir afmörkun

Samþættingar og þróun

API, Azure, Power Automate og .NET. Þjóðskrá, bókhaldskerfi, hleðslukerfi, ytri vefir – gögnin flæða þangað sem þau eiga að vera.

Eftir umfangiTímagjald
Hljómar þetta kunnuglega?

Vandamálin sem við leysum oftast.

01

Sölutækifæri í Excel og tölvupósti

Enginn veit hvað er í pípunni fyrr en einhver spyr. Áætlunin er tilfinning.

02

Þjónustubeiðnir týnast

Beiðni kemur í pósti, fer í Teams, endar í höfðinu á einum starfsmanni.

03

Við keyptum Copilot – en vitum ekki hvað hann skilar!

Sumir nota hann ekkert, aðrir eru farnir að smíða eigin agenta. Enginn veit hvaða gögn þeir sjá eða hvað þetta kostar.

04

Kerfið er hægt og þungt og fólk vinnur framhjá því

CRM var sett upp fyrir fimm árum af einhverjum sem er hættur. Það veit enginn neitt um það.

Teymið

Fimm sérfræðingar. Stuttar boðleiðir.

Lesa meira →

Ragnar Miguel Herreros

Þróun / ráðgjöf
SamþættingarVefþjónusturDynamics 10+ ár

Helgi Már Erlingsson

Agents / ráðgjöf
ArkitektúrAzureHönnun

Birgir Örn Grétarsson

Ráðgjöf / ferlagerð
FerlarCRM-ráðgjöfÞjálfun

Bjarki Freyr Rúnarsson

Þróun / ráðgjöf
Business CentralDataverseÞríþraut

Valdimar John Parks

Þróun / ráðgjöf
Power Platform.NETAI-fulltrúar

Eitt samtal.
Engar skuldbindingar.

30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.

Þú talar beint við ráðgjafa sem vinnur að lausnunum
Við komum okkur saman um næstu skref og eftirfylgni
Einlægt svar, líka ef svarið er „þið þurfið okkur ekki“

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.