Hafa samband
Persónuvernd

Hvað við geymum – og hvað ekki.

Hér lýsum við meðferð upplýsinga þegar þú hefur samband, tekur sjálfsmat, skráir þig á póstlista, bókar samtal eða samþykkir vefgreiningu.

Form á vefnum

Upplýsingar úr samskiptaformi og innsendu sjálfsmati fara í CRM-kerfi Retric (Microsoft Dataverse) til að svara fyrirspurn og fylgja henni eftir. Þar geta verið nafn, netfang, fyrirtæki, símanúmer, skilaboð og svör úr sjálfsmati. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að svara erindum eða, þegar það á við, ráðstöfunum að þinni beiðni áður en samningur er gerður. Svör úr sjálfsmati eru unnin tímabundið á vefþjóninum en ekki send í CRM nema þú sendir inn formið. Ekki senda viðkvæmar persónuupplýsingar í formunum.

Póstlisti

Við notum netfang sem þú skráir á póstlistann til að senda fréttir og efni frá Retric á grundvelli samþykkis þíns. Þú getur afturkallað samþykkið og óskað eftir afskráningu með pósti á info@retric.is. Skráning á póstlista er aðskilin frá fyrirspurn eða sjálfsmati.

Bókun samtals

Bókunarsíðan birtir Microsoft Bookings. Þegar dagatalið hleðst tengist vafrinn þjónustu Microsoft, sem fær tæknilegar upplýsingar um tenginguna. Upplýsingar sem þú slærð inn við bókun eru notaðar til að skipuleggja samtalið og senda staðfestingu. Vinnslan byggir á beiðni þinni um samtal og lögmætum hagsmunum okkar af því að sinna henni. Meðferð gagna og vafrakaka í bókunarþjónustunni fer einnig eftir skilmálum og stillingum Microsoft Bookings.

Vefgreining

Ef þú samþykkir vafrakökur teljum við heimsóknir með vefgreiningarþjónustu til að sjá hvaða efni nýtist. Án samþykkis eru engar slíkar kökur settar. Þú getur breytt valinu hvenær sem er undir „Vafrakökustillingar“ neðst á síðunni.

Tæknilegar upplýsingar

Við notum ekki auglýsingarakningu og vefgreining fer aðeins fram með samþykki, eins og lýst er hér að ofan. Vefurinn notar tæknilega virkni til að verja innsendingar og halda utan um sjálfsmatið. Hýsingarþjónusta getur skráð tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu, slóð og tíma beiðni, vegna reksturs, öryggis og villugreiningar. Slík vinnsla byggir á lögmætum hagsmunum okkar af öruggum rekstri.

Varðveisla og þjónustuaðilar

Varðveislutími fer eftir tilgangi upplýsinganna, eftirfylgni erindis, viðskiptasambandi og lagaskyldum. Póstlistaskráning er varðveitt meðan samþykki gildir; lágmarksupplýsingar geta verið nauðsynlegar til að virða afskráningu. Við notum þjónustur Microsoft við hýsingu, CRM og bókanir og vefgreiningarþjónustu ef þú samþykkir vafrakökur. Vinnslustaðir og hugsanlegir flutningar utan EES ráðast af þjónustu og stillingum. Þú getur óskað eftir nánari upplýsingum um viðeigandi varðveislu, vinnsluaðila og verndarráðstafanir hjá info@retric.is.

Réttindi þín

Þú getur óskað eftir aðgangi, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu og, eftir því sem við á, flutningi gagna. Þú getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum og afturkallað samþykki án þess að það hafi áhrif á fyrri lögmæta vinnslu. Sendu erindi á info@retric.is. Almennt er svarað innan eins mánaðar; ef lög heimila framlengingu færðu upplýsingar um hana og ástæðu hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar, personuvernd.is.

Ábyrgðaraðili

Retric ehf., kt. 500719-1090, Grensásvegi 11, 108 Reykjavík.

Eitt samtal.
Engar skuldbindingar.

30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.

Þú talar beint við ráðgjafa sem vinnur að lausnunum
Við komum okkur saman um næstu skref og eftirfylgni
Einlægt svar, líka ef svarið er „þið þurfið okkur ekki“

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.