Greining
Hvernig eru ferlarnir í dag, hvar má bæta og hvaða lausnir henta.
Hugbúnaðarsérfræðingar með áratuga reynslu í ráðgjöf, þróun og innleiðingum. Við tengjum saman ferla, gögn og fólk. Tímarammar hér eru viðmið; umfang, verð og afhending eru staðfest í tilboði.
Við greinum núverandi verkferla, gögn og kerfi og skilum skriflegri tillögu um hvað á að fara í Dynamics 365, hvað í Dataverse/Power Platform og hvað á að vera í friði. Þú færð kostnaðarmat á leyfum og vinnu áður en nokkuð er keypt.
Uppsetning Dynamics 365 Sales, Customer Service eða Customer Insights – Journeys í áföngum, með ykkar ferlum. Gagnaflutningur, samþættingar, öryggishlutverk og prófanir með raunverulegum notendum.
.NET, Azure Functions, API-þjónustur, viðbætur í Dataverse (plugins, PCF) og Power Pages. Við skrifum kóða sem næsti forritari skilur – og skjölum hann.
Vinnustofur fyrir notendur og stjórnendur, stutt kennsluefni á íslensku og þjálfun lykilnotenda svo þekkingin sé innanhúss. Þegar gervigreind er hluti af lausninni förum við líka yfir takmarkanir hennar og ábyrgð notenda.
Mánaðarleg yfirferð, smærri breytingar, nýir eiginleikar frá Microsoft metnir og innleiddir þegar þeir skila einhverju. Við fylgjumst með kostnaði við agenta og Copilot fyrir þig.
Hvernig eru ferlarnir í dag, hvar má bæta og hvaða lausnir henta.
Við teiknum lausnina, gagnalíkanið og samþættingarnar og rýnum með ykkur.
Sett upp í áföngum, prófað, kennt. Engin „big bang“-helgi.
Við förum ekki þegar kerfið fer í loftið. Fyrstu vikurnar skipta mestu.
30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.