Hafa samband
Um okkur

Fimm sérfræðingar. Bein samskipti.

Hjá okkur talarðu við fólkið sem greinir verkefnið, smíðar lausnina og fylgir henni eftir. Við þekkjum Dynamics 365 og Dataverse vel og leggjum áherslu á lausnir sem henta ykkar fólki og rekstri.

Það sem við stöndum fyrir

Heiðarleiki

Við segjum nei þegar svarið er nei. Það sparar þér mest.

Einfaldleiki

Færri kerfi, færri smellir, færri „af hverju er þetta svona“.

Langtímasamband

Flestir viðskiptavinir okkar hafa verið með okkur í mörg ár. Við ætlum okkur það.

Hvað þýðir Retric?

Góð spurning. Það er blanda af ensku orðunum „Retro“ og „Futuristic“. Við erum soldið retro en um leið mjög framsýn.

Teymið

Ragnar Miguel Herreros

Þróun / ráðgjöf · B.Sc. tölvunarfræði

Sterkur bakgrunnur í kerfisstjórn og rekstri. Einstaklega laginn við að tengja hluti saman. Bjó á Ibiza sem krakki.

SamþættingarVefþjónusturDynamics 10+ ár

Helgi Már Erlingsson

Agents / ráðgjöf · M.Sc. tölvunarfræði

Í hugbúnaðargeiranum frá aldamótum. Lenti fyrir tilviljun í Dynamics fyrir meira en áratug og hefur ekki sleppt takinu. Hefur gaman að því að prófa nýja hluti.

ArkitektúrAzureHönnun

Birgir Örn Grétarsson

Ráðgjöf / ferlagerð · B.Sc. hagfræði

Þekkir krók og kima CRM og veit manna best hvað á heima þar og hvað ekki. Einn heitasti stuðningsmaður Real Madrid á Íslandi.

FerlarCRM-ráðgjöfÞjálfun

Bjarki Freyr Rúnarsson

Þróun / ráðgjöf · M.Sc. tölvunarfræði

Öflug viðbót með góðan bakgrunn í Dynamics og sérþekkingu í Business Central. Talar reiprennandi portúgölsku.

Business CentralDataverseÞríþraut

Valdimar John Parks

Þróun / ráðgjöf · B.Sc. tölvunarfræði

Valdimar þekkir Dynamics 365 vel og vinnur bæði í notendaviðmóti og bakendavirkni.

Power Platform.NETAI-fulltrúar

Eitt samtal.
Engar skuldbindingar.

30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.

Þú talar beint við ráðgjafa sem vinnur að lausnunum
Við komum okkur saman um næstu skref og eftirfylgni
Einlægt svar, líka ef svarið er „þið þurfið okkur ekki“

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.