Sala, þjónusta og markaðssetning á einum grunni.
Við vinnum með sölu-, þjónustu- og markaðslausnir Dynamics 365 sem byggja á Dataverse. Við tengjum þær við ykkar gögn og verklag svo fólk hafi betri yfirsýn og þurfi síður að skrá sömu upplýsingar á mörgum stöðum. Copilot og agentar koma til greina þegar verkefnið hentar.
Dynamics 365 Sales
Mögulegir viðskiptavinir, sölutækifæri, tilboð og söluspá á einum stað. Við leggjum áherslu á skýra ábyrgð og eftirfylgni. Copilot og agentar geta stutt við undirbúning og úrvinnslu, eftir leyfum og uppsetningu.
Verkefni sem við skoðum
- Samantekt á fyrri samskiptum fyrir fund
- Yfirsýn yfir sölutækifæri sem þarfnast eftirfylgni
- Drög að tölvupósti sem sölufólk yfirfer áður en hann er sendur
Dynamics 365 Customer Service
Erindi, þekkingargrunnur, þjónustuviðmið og samskiptaleiðir. Við setjum upp flokkun og ábyrgð og skoðum hvar sjálfvirkni getur létt undir. Tillögur gervigreindar þurfa traustar heimildir og skýrar reglur um hvenær starfsmaður tekur við.
Verkefni sem við skoðum
- Flokkun fyrirspurna og tillögur að réttum viðtakanda
- Samantekt erindis og leit í samþykktum þekkingargrunni
- Svaradrög með heimildum og afhending til starfsmanns þegar þarf
Customer Insights – Journeys
Markhópaskipting, samskiptaferlar og eftirfylgni. Við tengjum samskipti við CRM-gögn og tökum mið af samþykki, samskiptavali og gæðum gagna. Tölvupóstur, SMS og aðrar rásir þurfa viðeigandi uppsetningu og þjónustusamninga.
Verkefni sem við skoðum
- Markhópar byggðir á viðeigandi gögnum og heimildum
- Drög að efni sem er yfirfarið á viðeigandi tungumáli
- Eftirfylgni í Sales tengd skilgreindum samskiptaferlum
Leyfi og notkun. Metið saman.
Kostnaður fer eftir vörum, leyfum, notendum og notkun. Sumir eiginleikar eða notkun eru innifalin í tilteknum leyfum; önnur notkun er mæld, meðal annars í Copilot Credits. Við yfirförum gildandi skilmála og framboð fyrir ykkar umhverfi áður en tilboð er gert. Í kostnaðaráætlun skiljum við að leyfi, innleiðingu og rekstur, setjum upp viðvaranir og þau notkunarmörk sem þjónustan styður og semjum um eftirfylgni. Viðvaranir eru ekki alltaf hörð útgjaldamörk.
Við einbeitum okkur að Customer Engagement-hluta Dynamics 365. Fyrir ERP-hlutann (Finance, Supply Chain) vísum við á samstarfsaðila – og segjum þér það strax.
Eitt samtal.
Engar skuldbindingar.
30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.