Hafa samband
Afstaða Retric

Gervigreind hjá Retric.

Við notum gervigreind á hverjum degi – við kóðun, skjölun og greiningu – sem verkfæri, ekki töfralausn. Þetta er afstaða okkar og hvernig við verjum gögn viðskiptavina.

Grundvallarreglur

Gervigreind getur flýtt fyrir vinnu en kemur ekki í stað dómgreindar. Við rýnum efni og kóða sem við afhendum. Í sjálfvirkum ferlum skilgreinum við ábyrgð, hvenær þarf samþykki og hvenær starfsmaður tekur við. Ábyrgðin færist ekki yfir á gervigreindina.

Gögn viðskiptavina

Áður en við tengjum gervigreind við gögn viðskiptavinar förum við yfir aðgangsheimildir, þjónustuaðila, vinnslustað og varðveislu gagna með honum. Við veljum þjónustur og stillingar í samræmi við þær kröfur og yfirförum skilmála um notkun gagna til þjálfunar. Microsoft-umhverfi er ekki sjálfkrafa trygging fyrir því að öll vinnsla fari fram á sama stað; líkanaval og tengingar við aðrar þjónustur skipta máli.

Til hvers við notum hana

Við nýtum hana við kóðun, skjölun, þýðingar, greiningu og undirbúning funda þegar gögn og verkefni henta. Við yfirförum niðurstöður og metum hvort hún spari tíma án þess að draga úr gæðum. Íslenskt efni þarf að prófa með íslenskum hugtökum og raunverulegum spurningum, ekki bara þýða úr ensku.

Hvað við gerum ekki

Við felum agentum ekki sjálfstæðar ákvarðanir um ráðningar eða frammistöðu starfsfólks. Verkefni sem geta haft áhrif á réttindi fólks kalla á sérstakt mat og eftir atvikum lögfræðilega ráðgjöf. Við metum persónuvernd og viðeigandi reglur fyrir hvert verkefni; notkun Microsoft-þjónustu ein og sér tryggir ekki að öllum kröfum sé fullnægt.

Ábyrgð á agentum

Agent sem les gögn, svarar viðskiptavinum eða framkvæmir aðgerðir þarf ábyrgðaraðila, rétt eins og starfsmaður eða kerfi. Einhver hjá fyrirtækinu þarf að eiga hvern agent: ákveða hvað hann má gera, fylgjast með því sem hann gerir og bregðast við þegar eitthvað fer úrskeiðis. Við veitum ráðgjöf um hvernig ábyrgðinni er skipt, hvaða aðgerðir krefjast samþykkis, hvernig þær eru skráðar og hvenær þarf að endurmeta agent eftir breytingar.

Hvernig við hjálpum

Við byrjum á afmörkuðu verkefni og berum gervigreind saman við einfaldari sjálfvirkni eða breytingu á verklagi. Við skilgreinum árangursviðmið, prófum svör og aðgerðir og ákveðum með ykkur hvort fara eigi í rekstur. Stundum er niðurstaðan að nýta betur kerfið sem er þegar til staðar.

Eitt samtal.
Engar skuldbindingar.

30 mínútur þar sem við hlustum, spyrjum og segjum þér hreint út hvort og hvernig við getum hjálpað.

Þú talar beint við ráðgjafa sem vinnur að lausnunum
Við komum okkur saman um næstu skref og eftirfylgni
Einlægt svar, líka ef svarið er „þið þurfið okkur ekki“

Tengist aftur… / Rejoining the server…

Tenging mistókst, reynt aftur eftir sek.

Náði ekki að tengjast.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.

Lotan var sett í bið.

Náði ekki að halda áfram.
Reyndu aftur eða endurhladdu síðuna.