GrunnurinnDataverse
Sameiginlegt gagnalíkan, öryggishlutverk og viðskiptareglur. Við skilgreinum hvað á að skrá, hver má sjá og breyta því og hvaða breytingar þarf að rekja. Dataverse MCP getur tengt samþykkta gervigreindarbiðlara við gögn og verkfæri. Aðgangur fer eftir auðkenningu og heimildum; leyfi, gagnaleiðir og möguleg notkunargjöld eru metin áður en tenging er opnuð.
ÖppPower Apps
Sérsniðin öpp fyrir ferli sem passa ekki í stöðluð form, á síma, í Teams eða í vafra. Við smíðum þau eða kennum ykkur, með áherslu á notagildi, aðgangsheimildir og viðhald. Öpp sem verða til með aðstoð Copilot þurfa sömu yfirferð og önnur öpp.
SjálfvirkniPower Automate
Sjálfvirkni milli kerfa: samþykktir, tilkynningar og skjalagerð. Skýr regla þarf oft ekkert gervigreindarlíkan. Tenging við staðbundin kerfi er metin út frá gáttum, aðgangi og rekstrarkröfum.
VefirPower Pages
Ytri vefir tengdir Dataverse: þjónustugáttir, umsóknir og sjálfsafgreiðsla. Við skilgreinum aðgang ytri notenda að gögnum og metum innskráningu með Entra eða samþættingu við íslensk rafræn skilríki. Leyfi og þjónustusamningar ráðast af útfærslu.
InnsýnPower BI
Mælaborð ofan á Dataverse og öðrum gögnum. Rétt gögn á réttum tíma, ekki 40 skýrslur sem enginn opnar.
TengingarSamþættingar
Þjóðskrá, bókhaldskerfi, hleðslukerfi, greiðslulausnir, Azure API Management. Við tengjum það sem þarf að tala saman – með C# þegar það á við.